|
Harma viðbrögð Samfylkingar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 22.5.2009 | 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
„En ef menn ætla að svelta sig í hel og vilja ekki aðstoð er eins gott að það sé alveg á hreinu,“ segir Haukur Guðmundsson, forstjóri hinnar mætu stofnunar, Útlendingastofnunar.Hvaða helvítis della er þetta?
Hverjum gæti dottið í hug að manni, sem varla nýtur nokkurra réttinda, gæti legið mest af öllu á að afneita læknishjálp? Til að árétta allan misskilning, þá var yfirlýsingin á íslensku, svo ástæða er til að ætla að Mansri hafi átt örðugt með að skilja plaggið sem hann var beðinn að skrifa undir.
Ég finn það ekki hjá mér að trúa einu einasta orði sem Haukur Guðmundsson segir. Ég skil mætavel hvers vegna farið var að heimili hans til mótmæla. Hann er augljóslega virkur gerandi í meðferð hælisleitenda. Svonalagað er ekki gert eftir starfsreglum eða settum lögum frá þingi eða ráðuneyti, þó ef til vill brjóti það ekki í bága við reglurnar.
|
Mál hælisleitanda lá óhreyft í heilt ár |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 1.5.2009 | 09:04 (breytt kl. 09:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Að sjálfsögðu, segir Ásta, enda flokkssystir hennar þegar lent í krossfestingu af höndum þeirra sem allt vita um hvað er sjálfsagt. Að sjálfsögðu ættum við að vilja vinna olíu. Að sjálfsögðu vill Ísland verða olíuveldi. Að sjálfsögðu viljum við komast í klúbbinn
Að sjálfsögðu samræmist það markmiðum vinstrisins að vinna og selja olíu. Það hefur ekkert með kapítalisma að gera, er það? Nei... Og svo er þessi kapítalismi bara dautt orð hvort sem er, ekki satt? Öll viljum við græða, ekki satt? Öll viljum við vera frímúrarar. Ef maður er ekki yfir, þá er maður undir, ha, krakkar...
|
Hlýnunin felur í sér tækifæri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 29.4.2009 | 22:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fjöldi verknaða og gjörninga hafa nú verið framdir í andstöðu við íslenskt kjörkerfi. Þessi, að kúka á kjörseðilinn, gengur skiljanlega mest fram af fólki. Þó fólk vilji einblína á það hversu ógeðslegur kúkur er (kúkur er frekar ógeðslegur) og að kjörnefndir hafi ef til vill fengið kúk á puttana og svo framvegis er samt ekki hægt að líta fram hjá því að gjörningurinn hefur mjög sterka merkingu.
Ég kaus, því mér fannst að þessar kosningar gætu í raun náð að fylgja fram einhverju réttlæti. Það er samt merkilegt að líta á að Íslensk þjóð verður nú sífellt óþægari (sem hefur fyrir mér jákvæðan skilning). Fólk vill í raun færa einhverjar fórnir (mér þætti það heldur áhættusamt fyrir mig og mína ímynd að kúka á almannafæri) til að sýna yfirvöldum að þeim finnst nútímalýðræði ekki fullnægjandi. Þakklæti er eiginleiki sem á ekkert erindi í stjórnmál og hefur mjög takmarkaða tengingu við réttlæti.
Viðbót:
Til að skýra afstöðu mína betur, þá hef ég gaman af gjörningnum. Mér finnst hann reyndar liggja beint við. „Já, auðvitað!“ lá mér við að segja þegar ég fann myndbandið. Sumir freistast til að vorkenna ræstingarfólkinu eða þeim sem taldi seðilinn, benda ef til vill á smithættu. Ég held að slík afstaða sé aðallega misheppnuð viðleitni til að rökstyðja hreina hneykslun. Fjöldi fólks vinnur við að þrífa misgeðslega salernisaðstöðu án áhættuþóknunar.
|
Skeindi sig með kjörseðli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 27.4.2009 | 15:31 (breytt kl. 21:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég var að setja upp nýtt blogg:
Það fylgja því einhverjar viðjar að skrifa moggablogg. Mér líður alltaf eins og í umræðu á málefnunum(punktur com). Ætli ég muni ekki enn semja færslur við eina og eina frétt.
Einar.
Bloggar | 25.4.2009 | 18:20 (breytt kl. 18:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég blæs – nei – ég frussa á svona kjaftæði. Pfrrrrt! Og hana nú!
Þetta er sama kveinið og við heyrum frá öðrum auðmönnum heimsins (þ.á.m. Íslands). Þegar auðæfi eru komin svo rúmlega yfir milljarð króna múrinn er allt annað bara stig í leik. Bara enn eitt mark. Það heitir ekki að koma illa út að standa eftir með 29 milljarða króna. Aldrei. Alveg sama hver eignin var fyrir. Meðan gjaldeyririnn hefur enn einhverja merkingu heitir þetta bara að vera sjúklega, ógeðslega ríkur. Það mál á sér bara eina hlið.
|
Poppgoð í kreppu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 23.4.2009 | 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ég fer nokkuð nærri um hvers konar glæsihús ræðir hér um. Ef það er eitthvað í líkingu við glæsihúsin í skuggahverfinu og glæsihúsið við Tryggvagötu held ég að ég hafi – og margir aðrir – fengið mig fullsaddan af glæsihúsum.
|
Í vegi fyrir glæsihúsi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 15.4.2009 | 14:20 (breytt kl. 14:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Og vonbrigði var hún. Það væri reyndar óréttlátt að segja að hlutar hennar hafi ekki staðið undir sér. Leikstjóranum tókst ágætlega að forðast óþarfa háttvísi þar sem hún gæti legið beint við og efnistök og handrit voru þrátt fyrir allt með betra móti. Það sem fór í taugarnar á mér voru svipaðir hlutir og trufluðu mig við 300 – en Zack Snyder leikstýrði bæði henni og þessari. Yfirdrifin notkun sjónbrigða og -brellna af ýmsu tagi. Tölvugerðar nærmyndir og slow motion-skot sem einhverjum gæti fundist að nálgist myndasöguformið. Það fer fram hjá mér.
Auk þess var nokkuð nýtt sem fór í taugarnar á mér – en það var hvernig nokkur af vinsælustu lögum síðustu aldar voru notuð sem kvikmyndatónlist. Ef til vill ætlaði leikstjórinn að fanga andrúmsloft 20. aldarinnar. Bob Dylan sem byrjunarstef hefði kannski sloppið út af fyrir sig – en þegar Neunundneunzig luftballoons byrjaði fór ég að átta mig á því hversu mikið þetta truflaði mig.
Ég reikna með því að mest af lofi myndarinnar stafi einfaldlega af því hversu frábær saga Alan Moore er – jafnvel meira viðeigandi nú og allt síðan 2001 heldur en þegar hún var samin. Myndin gat ekki farið algerlega varhluta af þeim gróða. Hún er auðveld leið til að innbyrða Watchmen en ég mæli miklu, miklu fremur með myndasögubókinni. Snyder ætti líklega að íhuga það viðmið Kubrick, að semja aðeins myndir eftir lélegum bókum.
Bloggar | 7.4.2009 | 00:46 (breytt kl. 00:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
|
Óskar lausnar frá störfum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 6.4.2009 | 02:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er svolítið fyndið hvernig blaðamenn taka frásögnum sem þessum gagnrýnilaust. Mótmælin voru sem sagt friðsamleg þar til lögregla greip inn í – en það kom aldrei til átaka. Hvaða hluti mótmælanna voru þá ófriðsamleg? Handtökurnar?
Fólk er of siðavant (sem hefur svipaða merkingu og ógagnrýnið) í dómum á þessu máli. Í moggabloggheimum heyrast engar raddir, nema þær að of langt sé gengið. Vegna þess hversu útlendingastofnun – og þeir lögreglumenn sem fyrir hana starfa – ganga nærri einkalífi hælisleitenda, þegar gerðar eru rassíur og upptækir fjármunir sem nema nokkrum tugum þúsunda á mann, líkt og gerðist á liðnu ári, þá þykir mér þetta vel sloppið hjá herra forstjóranum. Ég sé ekki að börnum Hauks og fjölskyldu sé nein sérstök vorkunn þó glamri aðeins fyrir utan gluggana um hábjartan dag (ég veit annars ekkert hversu mörg börn og á hvaða aldri Haukur á). Ef til vill óttast fólk að börnin komist að því hversu ógeðslegri stofnun pabbi þeirra stjórnar.
Bæti við hlekk á þessa grein hér í Dagblaðinu Nei.
|
Mótmælendur enn í haldi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 5.4.2009 | 19:21 (breytt kl. 19:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)




hehau
disdis
vest1